20.11.2016 14:59:00
Ísnálin 2016 - Ragna Sigurðardóttir hlýtur verðlaunin fyrir best þýddu glæpasöguna
Verðlaunaafhending Ísnálarinnar 2016 (IcePick Award) fór fram í Norræna húsinu laugardaginn 19. nóvember. Verðlaunin, sem eru á vegum Iceland Noir, Hins íslenska glæpafélags og Þots, Bandalags þýðenda og túlka, eru veitt fyrir bestu þýðingu á glæpasögu. Eftirtaldir þýðendur voru tilnefndir:
- Hin myrku djúp eftir Ann Cleeves; þýðandi Þórdís Bachmann. Útg. Ugla.
- Konan í myrkrinu eftir Marion Pauw; þýðandi Ragna Sigurðardóttir. Útg. Veröld.
- Kólibrímorðin eftir Kati Hiekkapelto; þýðandi Sigurður Karlsson. Útg. Skrudda.
- Meira blóð eftir Jo Nesbö; þýðandi Bjarni Gunnarsson. Útg. JPV.
- Sjöunda barnið eftir Erik Valeur; þýðandi Eiríkur Brynjólfsson. Útg. Draumsýn.
Að þessu sinni hlaut Ragna Sigurðardóttir verðlaunin fyrir þýðingu sína á bókinni Konan í myrkrinu (Daglicht) eftir Marion Pauw.
Bandalagið óskar þýðendum til hamingju með tilnefninguna og Rögnu innilega til hamingju með verðlaunin!
Til baka