19.9.2014 16:52:00
Bókamessan í Gautaborg í næstu viku
Fréttatilkynning frá Miðstöð íslenskra bókmennta:
Íslensku rithöfundarnir Sjón, Yrsa Sigurðardóttir, Eiríkur Örn Norðdahl, Andri Snær Magnason og Lani Yamamoto koma fram á bókamessunni í ár. Íslenski básinn í Gautaborg er númer C02:01.
Miðstöð íslenskra bókmennta tekur þátt í Bok & bibliotek - Bókamessunni í Gautaborg í Svíþjóð sem haldin er dagana 25. - 28. september. Bókamessan í Gautaborg á stórafmæli um þessar mundir en þetta verður í 30. skiptið sem messan er haldin og þetta er stærsta bókasýning Norðurlanda en hana sækja árlega um 100.000 gestir.
Íslenskur sýningarbás á Bókamessunni í Gautaborg er í samstarfi við Íslandsstofu, hann prýða að þessu sinni ljósmyndir Írisar Daggar Einarsdóttur af íslenskum höfundum sem tilnefndir eru til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár auk Sjóns og Yrsu Sigurðardóttur sem taka þátt í bókmenntadagskrá messunnar að þessu sinni. Á íslenska básnum verður meðal annars bókasala á vegum Félags íslenskra bókaútgefenda ásamt kynningu á nýjum þýðingum Íslendingasagnanna á sænsku, dönsku og norsku.
Íslenski básinn í Gautaborg er númer C02:01.
Sem hluti af Norðurlandaátaki Miðstöðvar íslenskra bókmennta verður lögð áhersla á sýnileika íslenskra höfunda og bókmennta í dagskrá Bókamessunnar í Gautaborg í Svíþjóð á næstu þremur árum. Í ár koma íslensku höfundarnir Eiríkur Örn Norðdahl, Yrsa Sigurðardóttir, Andri Snær Magnason, Sjón og Lani Yamamoto fram í bókmenntadagskrá messunnar eins og hér segir:
Sjá dagskrá hér: http://www.islit.is/frettir/nr/3727
Vorið 2015 mun Miðstöð íslenskra bókmennta halda bókmenntakynningafundi fyrir norska og finnska útgefendur í samstarfi við sendiráð Íslands í Osló og Helsinki, líkt og gert var fyrir danska og sænska útgefendur í maí síðastliðnum í samstarfi við sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi.
Á Bókamessunni í Gautaborg í september 2015 verða íslenskar bókmenntir og höfundar í brennidepli í sérstakri dagskrá messunnar sem kallast Raddir frá / Röster från. Í ár eru það Raddir frá Katalóníu sem heyrast á messunni. Af þessu tilefni verður hópi íslenskra rithöfunda boðið að taka þátt í bókmenntadagskrá messunnar að ári, íslenski básinn verður stærri en venjulega auk þess sem ýmsir aðrir íslenskir list- og menningarviðburðir verða í Gautaborg á messutímanum.
Til baka
Prentvæn útgáfa | Senda á Facebook | RSS
|
|