1.12.2015 19:20:00
Tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna
Í dag var tilkynnt við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum um tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2015.
Bandalag þýðenda og túlka hefur frá árinu 2005 veitt verðlaun á alþjóðlegum degi bókarinnar, 23. apríl, fyrir íslenska þýðingu á erlendu skáldverki. Forseti Íslands afhendir verðlaunin á Gljúfrasteini, en svo vill til að dagur bókarinnar er einnig fæðingardagur Halldórs Laxness.
Íslensku þýðingaverðlaunin voru sett á fót til að vekja athygli á mikilvægi þýðinga fyrir íslenska menningu og þeim afbragðsverkum sem auðga íslenskar fagurbókmenntir á ári hverju fyrir tilstilli þýðenda. Upphaflega kusu félagsmenn Bandalags þýðenda og túlka um tilnefnd verk, en fljótlega var ákveðið að fela óháðri þriggja manna dómnefnd að tilnefna fimm verk og velja verðlaunahafann. Tilnefningar eru kynntar samhliða tilnefningum til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Eftirfarandi þýðingar eru tilnefndar til Íslensku þýðingaverðlaunanna:
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson: Nýsnævi – safn ljóðaþýðinga eftir 15 höfunda (Útgefandi Dimma)
Ásdís R. Magnúsdóttir: Rangan og réttan – þrjú ritgerðarsöfn eftir Albert Camus (Útgefandi Háskólaútgáfan)
Brynja Cortes Andrésdóttir: Ef að nóttu ferðalangur eftir Italo Calvino (Útgefandi Ugla)
Jón Hallur Stefánsson: Spámennirnir í Botnleysufirði eftir Kim Leine (Útgefandi Bókaútgáfan Sæmundur)
Silja Aðalsteinsdóttir: Grimmsævintýri, Philip Pullman tók saman og endursagði (Útgefandi Mál og menning)
Dómnefnd skipuðu: Árni Matthíasson formaður nefndar, María Rán Guðjónsdóttir og Tinna Ásgeirsdóttir og kann Bandalag þýðenda og túlka þeim þakkir fyrir mikilvægt og vandasamt starf,
Íslensku bókmenntaverðlaunin haf verið veitt frá árinu 1989 og frá árinu 2013 hafa flokkarnir verið þrír, fagurbókmenntir, fræðibækur og bækur almenns eðlis og barna- og ungmennabækur.
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki barna- og ungmennabóka:
Arnar Már Arngrímsson: Sölvasaga unglings (Útgefandi Sögur útgáfa)
Gunnar Theodór Eggertsson: Drauga-Dísa (Útgefandi Vaka Helgafell)
Gunnar Helgason: Mamma klikk! (Útgefandi Mál og menning)
Hildur Knútsdóttir: Vetrarfrí (Útgefandi JPV útgáfa)
Þórdís Gísladóttir: Randalín, Mundi og afturgöngurnar (Útgefandi Bjartur)
Dómnefnd skipuðu: Hildigunnur Sverrisdóttir formaður nefndar, Árni Árnason og Sigurjón Kjartansson.
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fagurbókmennta:
Auður Jónsdóttir: Stóri skjálfti (Útgefandi Mál og menning)
Einar Már Guðmundsson: Hundadagar (Útgefandi Mál og menning)
Hallgrímur Helgason: Sjóveikur í München (Útgefandi JPV útgáfa)
Hermann Stefánsson: Leiðin út í heim (Útgefandi Bókaútgáfan Sæmundur)
Jón Kalman Stefánsson: Eitthvað á stærð við alheiminn (Útgefandi Bjartur)
Dómnefnd skipuðu: Erna Guðrún Árnadóttir formaður nefndar, Helga Ferdinandsdóttir og Knútur Hafsteinsson
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:
Dagný Kristjánsdóttir: Bókabörn (Útgefandi Háskólaútgáfan)
Gunnar Þór Bjarnason: Þegar siðmenningin fór fjandans til - Íslendingar og stríðið mikla 1914 – 1918 (Útgefandi Mál og menning)
Héðinn Unnsteinsson: Vertu úlfur – wargus esto (Útgefandi JPV útgáfa)
Páll Baldvin Baldvinsson: Stríðsárin 1938 – 1945 (Útgefandi JPV útgáfa)
Smári Geirsson: Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915 (Útgefandi Sögufélag)
Dómnefnd skipuðu: Pétur Þorsteinn Óskarsson formaður nefndar, Aðalsteinn Ingólfsson og Hulda Proppé.
Til baka
Prentvæn útgáfa | Senda á Facebook | RSS
|
|