18.6.2012 21:22:00
“Eitt tungumál fyrir allan heiminn“ - Málþing og sýning til heiðurs Þorsteini Þorsteinssyni
Þjóðarbókhlöðunni, fimmtudaginn 15. október kl. 15:30
Sýningin Eitt tungumál fyrir allan heiminn er haldin í tilefni af því að í ár eru hundrað ár liðin frá því að fyrsta íslenska kennslubókin í esperanto kom út. Dr. Þorsteinn Þorsteinsson hagfræðingur og fyrsti forstöðumaður Hagstofu Íslands skrifaði bókina og lagði hún grunn að fjölbreyttu íslensku esperantostarfi.
Esperanto er hlutlaust planmál ætlað til alþjóðlegra samskipta, grundvallað af L.L. Zamenhof. Málið birti Zamenhof 1887 og í dag er það mest notaða planmál veraldar.
Í formála kennslubókarinnar segir Þorsteinn m.a.: „Síðan latínan hætti að vera hjálparmál allra menntaðra manna, hefur þörfin á að setja eitthvert annað mál í stað hennar orðið æ brýnni ár frá ári ... það eru ekki einungis lærðu mennirnir, sem þurfa á hjálparmáli að halda, heldur einnig alþýða manna.“
Dagskrá:
15:30 Málþing - Kaffi á könnunni í fundarsal
Jónas Haralz, hagfræðingur: Nokkrar endurminningar um Þorstein Þorsteinsson hagstofustjóra
Gylfi Zoega, deildarforseti hagfræðideildar HÍ: Þorsteinn og hagfræðin
Kristján Eiríksson, formaður Íslenska esperantosambandsins: „Eiga vildi ég orðastað á öldinni sem kemur”, Esperanto fyrr og nú
Baldur Ragnarsson, rithöfundur: Kennslubók Þorsteins í esperanto
Málþinginu stýrir Hannes Högni Vilhjálmsson, lektor við HR
17:00 Sýning – Opnun og veitingar
Til baka
Prentvæn útgáfa | Senda á Facebook | RSS
|
|