23.5.2014 18:03:00
Nýræktarstyrkir 2014

23. maí 2014. Fréttatilkynning frá Miðstöð íslenskra bókmennta:

Nýræktarstyrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2014 tilkynntir 27. maí næstkomandi.

Miðstöð íslenskra bókmennta hefur ákveðið að veita fjóra Nýræktarstyrki í ár. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra mun tilkynna hverjir hljóta styrkina í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambands Íslands, þriðjudaginn 27. maí kl. 16:00.

Nýræktarstyrkir eru sérstakir styrkir til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap. Styrkjunum er ætlað að styðja við útgáfu á fyrstu verkum nýrra höfunda og er þar átt við skáldverk í víðri merkingu þess orðs, sögur, ljóð, leikrit, eða eitthvað allt annað.

Nýræktarstyrkir hafa verið veittir árlega síðan 2008. Á meðal verka og höfunda sem hlotið hafa Nýræktarstyrki síðustu ár eru barnabókin Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, skáldsagan Sláttur eftir Hildi Knútsdóttur, ljóðabókin Á milli okkar allt eftir Heiðrúnu Ólafsdóttur og smásagnasafnið Eldhafið yfir okkur eftir Dag Hjartarson.

Tvö verkanna sem fengu Nýræktarstyrki í fyrra eru komin út og hafa verkin og höfundar þeirra hlotið verðskuldaða athygli:

Vince Vaughn í skýjunum eftir Halldór Armand Ásgeirsson sem kom út hjá Máli og menning / Forlaginu haustið 2013

Innvols eftir Bergþóru Einarsdóttur, Elínu Ösp Gísladóttur, Guðrúnu Heiði Ísaksdóttur, Herthu Richardt Úlfarsdóttur, Kötlu Ísaksdóttur, mao, Nönnu Hlé HallGvuðs, Selmu Leifsdóttur, Valdísi Björt Guðmundsdóttur og Þórunni Þórhallsdóttur. Kom út hjá Útúr haustið 2013.


Hér má finna frekari upplýsingar um Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta: http://www.islit.is/styrkir/nyraektarstyrkur/uthlutanir/


Nánari upplýsingar um Nýræktarstyrki veitir Þorgerður Agla Magnúsdóttir hjá Miðstöð íslenskra bókmennta, netfang: [email protected] og farsími: 6995572.





Til baka

Prentvæn útgáfa | Senda á Facebook | RSS

Bandalag þýðenda og túlka | Hrísmóum 11 | 210 Garðabær | [email protected]