17.7.2012 17:22:00
Útboð Ríkiskaupa - Kynning og námskeið
7. febrúar kl. 14:00 að Þverholti 14 í Reykjavík.
Ríkiskaup, fyrir hönd Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins (ÞM), auglýsir útboð vegna þýðinga á löggjöf ESB. Um er að ræða lagatexta á ýmsum sviðum úr ensku á íslensku. Stefnt er að því að semja við a.m.k. 25 verksala.
Jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum er boðið að leggja inn tilboð. Gerð er krafa um háskólamenntun eða löggildingu í skjalaþýðingum auk þess sem æskilegt er að hafa reynslu af textagerð. Haldin verða hæfnispróf og verða bjóðendur valdir til þátttöku á grundvelli ferilskrár og tilboðs.
Samningar verða gerðir við bjóðendur á grundvelli tilboðs að því tilskildu að viðkomandi hafi staðist hæfnispróf. Umfang og fjöldi verkefna til einstakra þýðenda ræðst af niðurstöðu gæðamats ÞM. Vakin er athygli á kynningarfundi og námskeiði í tilboðsgerð þann 7. febrúar kl 14:00 að Þverholti 14 í Reykjavík. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.
Opnunartími tilboða er 24. febrúar kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Nemendur eru sérstaklega hvattir til að mæta þann 7. febrúar. Ákveðið hefur verið að hafa sérstakan fyrirspurnartíma fyrir nemendur HÍ eftir fundinn.
Til baka
Prentvæn útgáfa | Senda á Facebook | RSS
|
|