4.3.2013 17:10:00
Fyrirlestur um ljóđaţýđingar úr íslensku á japönsku
Nobuyoshi Mori, prófessor viđ Tokaiháskóla í Japan, flytur fyrirlestur á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, fimmtudaginn 7. mars í stofu 101 í Odda, kl. 16. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Vandinn ađ ţýđa íslensk ljóđ á japönsku“.
Prófessor Mori hefur ţýtt Kormákssögu og Hallfređarsögu á japönsku og nýlega lauk hann viđ ţýđingar á ljóđum nokkurra samtímaskálda. Í erindinu fjallar hann um mismun tungumálanna og mismundandi ljóđhefđir og ţann vanda sem er viđ ađ fást ţegar snúa á ljóđum úr íslensku á japönsku.
Prófessor Mori stundađi nám í rússnesku og germönskum málum viđ Tokíóháskóla erlendra mála og í norsku viđ Óslóarháskóla. Hann hefur kennt norsku og íslensku um langt árabil viđ Tokaiháskóla. Hann var forseti Norđurlandadeildar skólans á árunum 2000–2005 og formađur Félag íslenskra frćđa í Japan 2004–2005. Hann hefur međal annars gefiđ út kennslubók í norsku og íslenskan orđalista á japönsku.
Fyrirlesturinn verđur fluttur á ensku og fer fram í stofu 101 í Odda, nćstkomandi fimmtudag 7. mars kl. 16. Allir eru velkomnir.
Til baka
Prentvćn útgáfa | Senda á Facebook | RSS
|
|